Mörgæsirnar frá Madagaskar
2014·

Mörgæsirnar frá Madagaskar

Simon J. Smith, Eric Darnell

No ratings or reviews yet.

Synopsis

Mörgæsirnar fjórar frá Madagaskar sem segja má að hafi stolið senunni í Madagaskar-teiknimyndunum skemmtilegu frá Dreamworks-kvikmyndarisanum mæta nú aftur á svæðið í sinni eigin bíómynd. Nú er sem sagt komið í ljós að þeir Skipper, Kowalski, Hermann og Rico eru engar venjulegar mörgæsir heldur þrautþjálfaðar leynimörgæsir sem hafa í raun bjargað heiminum frá tortímingu oftar en einu sinni og haft betur í baráttunni við marga af hættulegustu karakterum dýraríkisins. Nú bíður þeirra félaga enn eitt verkefnið en það felst í að stöðva hinn illa innrætta kolkrabba Oktavíus sem ætlar sér að leggja heiminn undir sig og jafnvel rústa honum alveg með gríðarlega öflugu vopni sem hann hefur fundið upp. Til að leysa málið fá mörgæsirnar óvænta aðstoð frá háleynisamtökunum Norðanvindi, en aðalmaðurinn þar, eða réttara sagt aðalhundurinn, er hinn tungulipri og stimamjúki Leyndarmál fulltrúi sem eins og mörgæsirnar er reyndur í baráttunni við alls kyns glæpagengi.

Your Review

Sign in to rate and review this title.

Community

—
0 ratings

No ratings yet.